Hvað á sjóðurinn að heita?
28. janúar 2026
Nafnakeppni fyrir sameinaðan sjóð
Nýr lífeyrissjóður – nýtt nafn.
Sjóðurinn starfar nú undir nafninu Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður, en leitar nú að nýju nafni til framtíðar og biður almenning um aðstoð.
Sjóðurinn er stór, öflugur og öllum opinn, auk þess að vera starfsgreinasjóður nokkurra stétta: arkitekta, leiðsögumanna, lækna, hljómlistarmanna, verkfræðinga og tæknifræðinga. Í starfseminni er lögð áhersla á sveigjanleika, valfrelsi, árangur og upplýsingagjöf.
Við höfum opnað fyrir nafnakeppni hér https://nafnakeppni.almenni-lifsverk.is/
Það er skilafrestur til 5. febrúar 2026 og til mikils að vinna. Verðlaunin fyrir þá tillögu sem verður valin er 100.000 kr. gjafabréf. Ef fleiri en einn eru með sömu tillögu verður dregið um vinningshafa.
Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í að móta framtíð sjóðsins.