Tillaga um sameiningu samþykkt
24. september 2026
Sjóðfélagar Almenna-Lífsverks samþykktu tillögur stjórnar um sameiningu við SL lífeyrissjóð. Rafræn atkvæðagreiðsla um sameininguna fór fram dagana 22.-24. september og samþykktu 86,6% þeirra sem tóku þátt.
Alls tóku 1.627 sjóðfélagar þátt í atkvæðagreiðslunni en 66.851 sjóðfélagi var á kjörskrá.
Heildaratkvæðisvægi sjóðfélaga á kjörskrá nam 724.970.468.173. Greidd voru atkvæði sem námu samtals 84.630.300.987 í atkvæðavægi, eða 11,7% af heildaratkvæðisvægi sjóðfélaga.
Atkvæði sem námu 73.308.270.694 í atkvæðavægi féllu með tillögunum en 11.322.030.293 á móti. Þannig voru 86,6% greidds atkvæðavægis með tillögunum og 13,4% á móti.
Til þess að breytingar á samþykktum vegna sameiningarinnar teldust samþykktar þurftu tveir þriðju hlutar greiddra atkvæða að vera þeim fylgjandi. Það skilyrði var því uppfyllt.
Næsta skref í sameiningarferlinu er stjórnarfundur SL lífeyrissjóðs 29. september þar sem stjórn sjóðsins tekur afstöðu til tillagna um breytingar á samþykktum. Verði breytingarnar samþykktar verða þær sendar fjármála- og efnahagsráðherra til staðfestingar að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins.
Fyrirhuguð sameining er jafnframt háð því að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, ásamt því að Samkeppniseftirlitið staðfesti sameininguna