Getum við aðstoðað?

Þórólfur Árnason

Stjórnarformaður

Starfsferill/stjórnunarstörf:

  • Búmenn hsf. stjórnarformaður frá 2023
  • Samgöngustofa 2014 – 2019 forstjóri
  • Isavia ohf. 2010 – 2014 stjórnarformaður
  • Skýrr hf. 2006 – 2009 forstjóri
  • Reykjavíkurborg 2002 – 2004 borgarstjóri
  • Tal hf. 1998 – 2002 forstjóri
  • Lífsverk 1985 – 2000 stjórnarmaður (stjórnarformaður 1996 – 2000)

Námsferill:

  • Iðnaðar- og rekstrarverkfræði M.S. DTH/DTU 1981
  • Vélaverkfræði B.S. Háskóli Íslands 1979
  • Stúdentspróf MH 1975
  • Landspróf Gagnfræðaskóli Austurbæjar 1972
  • Ýmis námskeið í rekstri og fjármálum

Ástæður framboðs:

Ég hef mikinn áhuga á lífeyrismálum. Sat í stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga (Lífsverk) 1985 – 2000, þar af formaður 1996 – 2000. Sat í fyrstu stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða 1998 – 2000 og stýrði stefnumótunarvinnu fyrir landssamtökin 1998 og 2002. Lífeyrissjóður verkfræðinga var

frumkvöðull í því frá stofnun að tengja réttindaöflun lífaldri sjóðfélaganna og einnig í að tryggja lýðræði sjóðfélaganna, t.d. við stjórnarkjör.

Hef ætíð fylgst vel með umræðum um lífeyrismál, réttindaöflun og ávöxtun.

Mér er umhugað um að sameining Almenna og Lífsverks gangi vel og vil leggja mitt af mörkum. Hef oft komið að sameiningu stórra rekstrareininga og verið ráðinn sérstaklega til að sinna þannig verkefnum, t.d. við stofnun Isavia og á fyrstu árum Samgöngustofu. Þekki vel mikilvægi þess að þekking og mannauður haldist innan rekstrareininga við sameiningar. Hef mikla reynslu af stjórnun stórra rekstrareininga, setu í stjórnum og stjórnarformennsku fyrirtækja og stofnana, jafnt á einkamarkaði og í opinberum rekstri og þjónustu.