Í hnotskurn
þarf að samþykkja vefkökur.
Hærri eða lægri eftirlaun? - veldu núna!
þarf að samþykkja vefkökur.
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna - Upplýst ákvörðun?
þarf að samþykkja vefkökur.
Dæmi um kostnað
þarf að samþykkja vefkökur.
Breka Karlssyni, formaður Neytendasamtakanna - Réttar upplýsingar?
Hlaðvarp, mynd eða hljóð
-
Gerðu samanburð
Almenni – Lífsverk lífeyrissjóðurn mælir með að fólk geri samanburð á svokölluðum lykilupplýsingaskjölum sem sýna kostnað og vænta ávöxtun hjá mismunandi vörsluaðilum lífeyrissparnaðar. Öllum vörsluaðilum er skylt að birta slík skjöl sem eru stöðluð til að auðvelda samanburð á milli þeirra.
-
Taktu upplýsta ákvörðun
Þessari síðu er ætlað að hjálpa þér að taka upplýsta ákvörðun um séreignarsparnaðinn þinn. Þessi ákvörðun er mögulega þín stærsta fjárhagslega ákvörðun í lífinu til þessa.
Berðu saman lykilupplýsingaskjöl og vandaðu valið. Lykilupplýsingaskjöl Almenna – Lífsverks eru hér. -
Upphafskostnaður - sölukostnaður
Sölufólk tekur sér háar söluþóknanir, sem nema oft hundruðum þúsunda, fyrir hvern samning. Fólk gerir sér oft ekki grein fyrir þessum kostnaði.
Hjá Almenna – Lífsverki er enginn sölu- eða upphafskostnaður greiddur. -
Hærri væntur kostnaður á samningstíma
Í lykilupplýsingaskjölum kemur fram að lífeyristryggingar bera hærri umsýslukostnað en séreignarsparnaður hjá Almenna – Lífsverki. Kostnaður dregst frá sparnaði sjóðfélaga allan samningstímann og getur haft mikil áhrif á uppsafnaðan sparnað.
-
Lægri vænt ávöxtun
Vænt ávöxtun lífeyristrygginga er í flestum sviðsmyndum marktækt lægri en í blönduðum verðbréfasöfnum hjá Almenna – Lífsverki samkvæmt upplýsingum sem lesa má í lykilupplýsingaskjölum.
Á löngum tíma getur munurinn á eignamyndun orðið verulegur.
-
Hvað ef eitthvað breytist?
Lífeyristryggingasamningar eru til langs tíma jafnvel til margra áratuga. Ef einhverjar breytingar verða á þínum högum og þú hættir tímabundið að greiða eða lækkar greiðslu á samningstima lífeyristryggingar getur kostnaður numið stórum hluta af greiddum iðgjöldum.
Hjá Almenna – Lífsverki er hins vegar hægt að stöðva greiðslur tímabundið eða hætta greiðslum án þess að það leiði til nokkurs viðbótarkostnaðar. -
Íslenska séreignin leggur þýska stálið
Í nýlegri grein Gunnars Baldvinssonar í Viðskiptablaðinu er gerður samanburður á íslenskum séreignarsparnaði og þýskum líftryggingasparnaði. Þar kemur skýrt fram að munurinn er verulegur íslensku séreigninni í hag. Greinina má lesa hér.
þarf að samþykkja vefkökur.
Myndband fyrir ofan, hljóð fyrir neðan
Myndbrot
þarf að samþykkja vefkökur.
Eignamyndunin í lokin...
þarf að samþykkja vefkökur.
Tvö auka lög af hagsmunum
þarf að samþykkja vefkökur.