Almennt útboð á ytri endurskoðun Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs
16. febrúar 2026
Almenni – Lífsverk lífeyrissjóður, kt. 450290-2519, Dalvegi 30 Kópavogi, birtir hér auglýsingu um almennt útboð á ytri endurskoðun sjóðsins.
Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 12:00 þann 26. febrúar 2026. Opnun tilboða fer fram kl. 15:00 þann sama dag á skrifstofu sjóðsins.
Nánari upplýsingar um útboðið má finna hér:
Almenni – Lífsverk – Almennt útboð á ytri endurskoðun
*Leiðrétting var framkvæmd á útboðsgögnum þann 18. febrúar 2026 þar sem áréttað var að endurskoðandi sem leiðir verkefnið skuli ekki hafa sætt áminningu endurskoðendaráðs. Orðalag áður var óskýrt hvað þetta varðar og því leiðrétt.