Getum við aðstoðað?

Auglýst eftir framboðum

20. febrúar 2026

Auglýst eftir framboðum
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

til stjórnar Almenna - Lífsverks lífeyrissjóðs

Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum til stjórnar Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs. Stjórnarkjör fer fram með rafrænum hætti. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal stjórn skipuð sjö sjóðfélögum til þriggja ára í senn og skal stjórnin að lágmarki skipuð þremur konum og þremur körlum að loknu hverju stjórnarkjöri.

  • Samkvæmt bráðabirgðaákvæði um sameiningu Almenna og Lífsverks verður stjórnin þó skipuð níu sjóðfélögum 2026-2027.
  • Að þessu sinni er kosið um tvö sæti í aðalstjórn og skal a.m.k. annað þeirra skipað konu. Kjörtímabil er til þriggja ára.
  • Eingöngu sjóðfélagar geta boðið sig fram til stjórnar en viðmiðunardagur fyrir kjörgengi eru næstliðin áramót fyrir ársfund.
  • Nánari hæfisskilyrði er að finna í 31. gr. laga nr. 129/1997 um
    skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Framboðsfrestur er til kl. 23:59 þann 11. mars 2026. Framboð verða að berast kjörnefnd með sannanlegum hætti, svo sem með bréfi eða tölvupósti, fyrir lok framboðsfrests.

Hægt er að senda framboð með bréfi á skrifstofu sjóðsins að Dalvegi 30, 201 Kópavogi, eða á netfangið kjornefnd@almenni-lifsverk.is.

  • Með framboðum skulu fylgja helstu upplýsingar um frambjóðanda, s.s. nafn, kennitala, netfang, sími og heimilisfang.
  • Frambjóðendum verður boðið að kynna sig á vef sjóðsins.Kjörnefnd Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs, 25. febrúar 2026
    Elísabet Árnadóttir, Ólafur H. Jónsson og Kristín Edwald