Ársreikningar 2025 og samrunaefnahagsreikningur
25. mars 2026
Ársreikningar Lífsverks lífeyrissjóðs og Almenna lífeyrissjóðsins fyrir árið 2025 hafa verið birtir sem og samrunaefnahagsreikningur Almenna – Lífsverks 1.1.2026. Reikningarnir verða lagðir fyrir aðalfund Lífsverks og ársfund Almenna – Lífsverks sem verða haldnir á Reykjavík Natura þann 15. apríl 2026 kl. 17:00 og 18:00.
Ársreikningarnir eru í einu skjali og má sjá með því að smella hér.
Helstu atriði ársreiknings Lífsverks 2025
- Heildareignir 208 milljarðar.
- Greidd iðgjöld 9,7 milljarðar sem er 7,2% hækkun á milli ára.
- Greiddur lífeyrir samtryggingardeildar var 3,4 milljarðar.
- Lífeyrisgreiðslur séreignardeilda námu 0,8 milljörðum.
- Raunávöxtun samtryggingardeildar var 2,4% og séreignardeilda á bilinu 1,9% til 4,6%. Nánari upplýsingar um ávöxtun má lesa hér.
- Á árinu voru veitt ný lán til sjóðfélaga fyrir 5,6 milljarða.
- Tryggingafræðileg staða sýnir að heildarskuldbindingar eru 4,4% umfram eignir.
Helstu atriði í ársreikningi Almenna Lífeyrissjóðsins 2025
- Heildareignir 520 milljarðar.
- Greidd iðgjöld 28 milljarðar sem er 10,2% hækkun á milli ára.
- Greiddur lífeyrir samtryggingarsjóðs var 6,2 milljarðar.
- Lífeyrisgreiðslur séreignarsjóðs námu 8,2 milljörðum.
- Raunávöxtun samtryggingarsjóðs var 2,3% og séreignarsjóðs á bilinu 1,3% til 4,6%. Nánari upplýsingar um ávöxtun má lesa hér.
- Á árinu voru veitt ný lán til sjóðfélaga fyrir 16,9 milljarða.
- Tryggingafræðileg staða sýnir að heildarskuldbindingar eru 3,6% umfram eignir.
Helstu atriði samrunaefnahagsreiknings 1.1.2026
Sjóðfélagafundir Lífsverks lífeyrissjóðs og Almenna lífeyrissjóðsins samþykktu í nóvember 2025 tillögu stjórna um að sameina sjóðina frá og með 1. janúar 2026. Sameinaður sjóður, Almenni – Lífsverk hóf starfsemi þann 1. janúar 2026. Samrunaefnahagsreikningurinn er byggður á stöðu eigna og skuldbindinga sjóðanna þann 31. desember 2025.
Heildareignir sjóðsins í ársbyrjun voru 727 milljarðar króna.
- Eignir samtryggingarsjóðs voru 406 milljarðar króna eða 56% af heildareignum.
- Eignir séreignarsjóðs voru 321 milljaðar króna eða 44% af heildareignum.
- Sjóðfélagar geta valið á milli sjö ávöxtunarleiða í séreignarsjóði. Ævisafn II er stærsta ávöxtunarleiðin en eignir í ársbyrjun 116 milljarðar. Eignir annarra ávöxtunarleiða: Ævisafn III 96,9 milljarðar, Ævisafn I 65,6 milljarðar, Innlánasafn 36,8 milljarðar, Skuldabréfasafn 3,2 milljarðar, Ríkissafn 1,7 milljarðar og Erlend verðbréfasafn 331,4 milljónir króna.
- Tryggingafræðileg staða samtryggingarsjóðs Almenna – Lífsverks í ársbyrjun, mæld sem hlutfall af heildarskuldbindingum, var neikvæð um 4,5%.
Ársfundur 2026 og rafrænt stjórnarkjör
Nánari upplýsingar um rekstur og afkomu sjóðanna verða veittar á lokaaðalfundi Lífsverks miðvikudaginn 15. apríl kl. 17:00 á Hótel Reykjavík Natura og ársfundi Almenna – Lífsverks sama dag kl. 18:00. Nánari upplýsingar um dagskrá og tillögur fyrir fundina má lesa hér.
Streymt verður frá fundunum.
Rafrænt stjórnarkjör
Rafrænt stjórnarkjör fer fram frá kl. 12:00 þriðjudaginn 7. apríl til kl. 16:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Að þessu sinni er kosið um tvö sæti í aðalstjórn og skal annað þeirra að minnsta kosti skipað konu. Upplýsingar um frambjóðendur og leiðbeiningar um framkvæmd kosningarinnar má finna hér.