Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga
27. janúar 2026
Almenni-Lífsverk bauð sjóðfélögum á kynningarfund um ávöxtunarleiðir og lífeyrisréttindi í sameinuðum lífeyrissjóði (flutt réttindi og framtíðarréttindi). Markmið fundarins var að veita upplýsingar um ávöxtunarleiðir og réttindi í sameinuðum lífeyrissjóði.
Stund: Þriðjudagurinn 27. janúar kl. 17:15
Staður: Hilton Reykjavík Nordica
Erindi:
Ávöxtunarleiðir séreignarsjóðs og ávöxtun 2025
Kristjana Sigurðardóttir, forstöðumaður eignastýringar
Lífeyrir og samspil séreignar og réttinda í samtryggingarsjóði
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Stóra nafnamálið
Jón L. Árnason, framkvæmdastjóri, sagði frá samkeppni um framtíðarnafn á sameinuðum lífeyrissjóði
Fundinum var streymt hér. Uppttökuna og glærupakkann má finna hér fyrir neðan.
Starfsfólk og ráðgjafar sjóðsins voru mættir snemma á fundinn og ræddu við sjóðfélaga áður en dagskrá hófst.
Sjóðfélagar sem vilja nánari upplýsingar eru velkomnir á skrifstofu sjóðsins til að hitta ráðgjafa.
Ráðgjöf hjá Almenna – Lífsverki er að kostnaðarlausu og án skuldbindinga. Mælt er með að fólk panti tíma á vefsíðu sjóðsins.
Minnum á upplýsingasíðu Almenna – Lífsverk https://sameining.almenni-lifsverk.is/