Getum við aðstoðað?

Til launagreiðenda Lífsverks lífeyrissjóðs

05. febrúar 2026

Til launagreiðenda Lífsverks lífeyrissjóðs

Greiðsla iðgjalda

Þann 1. janúar 2026 sameinuðust Lífsverk lífeyrissjóður og Almenni lífeyrissjóðurinn í Almenna-Lífsverk lífeyrissjóð, undir kennitölu 450290-2549.

Launagreiðendum er hér með tilkynnt að frá og með 1. febrúar 2026 ber að greiða öll lífeyris­iðgjöld beint til Almenna – Lífsverk lífeyrissjóðs.

Launagreiðendur geta skilað iðgjöldum til sjóðsins með mismunandi hætti, sjá upplýsingar um iðgjaldaskil hér. Nauðsynlegt er að gera viðeigandi breytingar í launakerfum vegna iðgjaldaskila.

Launagreiðendavefur Lífsverks

Vakin er athygli á því að ekki er lengur hægt að skila iðgjöldum í gegnum launagreiðendavef Lífsverks en hægt er að skila í gegnum launagreiðendavef Almenna-Lífsverks. Notendum er bent á að endurnýja þarf áður veitt umboð vegna aðgangs að launagreiðendavefnum. Leiðbeiningar er að finna við innskráningu á launagreiðandavef.